Heimsmeistarinn fylgist spenntur með skák Caruana og Shirov. Mynd: Maria Emelianova/Chess.com

Fabiano Caruana (2812) og Wang Hao (2726) eru efstir og jafnir með fullt hús að lokinni þriðju umferð mótins á Mön sem fram fór í gær. Wang Hao vann landa sinn Bu Xiangzhi (2721) and Carnuana vann Lettann Alexei Shirov (2664).  Tíu skákmenn hafa 2,5 vinninga.

Magnús Carlsen (2876) er nú einum vinningi á eftir efstu mönnum eftir jafntefli við Rustam Kasimdzhanov (2657).

Fjórða umferð fer fram í dag. Þá mætast meðal annars Caruana og Wang Hao. Heimsmeistarinn mætir Vladislav Kovalev (2661)

Sigurvegari mótsins (eða sá sem sem er efstur á eftir Carlsen og/Caruana) fær keppnisrétt á næsta áskorendamóti sem fram fer í Rússlandi í vor.

Sjá nánar á Chess.com.

Mótið er hrikalega sterkt. Af 154 keppendum eru 132 stórmeistarar.

- Auglýsing -