Aronian vann Wang Hao. Mynd: Maria Emelianova/Chess.com

Levon Aronian (2758) vann Wang Hao (2726) á ofurmótinu í á Mön í gær. Jafntefli varð á á 11 af 12 efstu borðunum. Þar með talið í viðureign Magnúsar Carlsen (2876) og Rússans Kirils Alekseenko (2674). Armeninn er nú efstur ásamt Fabiano Caruana (2812) með 5½ vinning. Carlsen er í 3.-9. sæti með 5 vinninga.

Áttunda umferð fer fram í dag. Þá mætast Caruana og Aronian og Wang Hao og Carlsen.

Staða efstu manna:

1-2: Aronian, Caruana 5½ v.

3-9: Wang, Alekseenko, Grischuk, Maghsoodloo, Anton, Carlsen, Vitiugov 5 v.

10-29: Adhiban, Fedoseev, Shirov, Tari, Melkumyan, Jumabayev, McShane, Kovalev, Yu, Kryvoruchko, Karjakin, Wojtaszek, Nakamura, So, Gelfand, Anand, Dreev, Zhang, Hovhannisyan, Robson 4½ v.

Sjá nánar á Chess.com.

Sigurvegari mótsins (eða sá sem sem er efstur á eftir Carlsen og/Caruana) fær keppnisrétt á næsta áskorendamóti sem fram fer í Rússlandi í vor. Mótið er hrikalega sterkt. Af 154 keppendum eru 132 stórmeistarar.

- Auglýsing -