Miðvikudagskvöldið 16. október síðastliðinn fór fram sterkt og skemmtilegt skákmót á Stofunni. Mótið var fjórða Stofumót ársins. 22 skákmenn mættu til leiks, þar af níu með yfir 2000 stig. Stigahæstur keppenda var stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson með 2537 hraðskákstig og næstur á lista var Fide-meistarinn Vignir Vatnar Stefánsson með heil 2435 hraðskákstig.
Tefldar voru sjö umferðir með alþjóðlegu tímamörkum Fide, 3+2. Mótahald gekk snuðrulaust fyrir sig og menn létu ekki kappið bera fegurðina ofurliði. Að lokum stóð Hannes uppi sem sigurvegari með 5.5 vinning af 7. Með jafnmarga vinninga en aðeins neðar á stigum var Símon Þórhallsson sem hækkaði um 41 hraðskákstig. Í þriðja sæti varð alþjóðlegi meistarinn Guðmundur Kjartansson með fimm vinninga en Róbert Lagerman hlaut einnig fimm vinninga en var aðeins neðar á stigum. Þeir Hannes og Guðmundur eru nú um þessar mundir að gera sig klára fyrir EM landsliða í Georgíu, og hefur þátttaka í Stofumótinu eflaust verið mikilvægur þáttur í undirbúningsferlinu. Í fyrstu verðlaun voru 5000 krónur og forláta minjagripur frá Einvígi aldarinnar 1972 sem Ellert Berndsen gaf og á hann þökk skilið fyrir framlagið. Kjartan Ingvarsson fékk útdráttarverðlaunin, bókina “Benóný” um magnaðan skákferil og ævi Benóný Benediktssonar.
Aukinheldur fengu efstu þrír skákmennirnir glæsilega verðlaunapeninga merkta Miðbæjarskák. Gauti Páll Jónsson og Elvar Örn Hjaltason höfðu umsjón með mótinu og tefldu báðir líka. Elvar stóð sig með prýði og hækkaði um 39 hraðskákstig og af fleiri stigastökkvurum má nefna að Þórður Grímsson hækkaði um 26 hraðskákstig.
Næsta skákmót á vegum Miðbæjarskákar fer fram í nóvember og verður staðsetning sem og tímasetning þess móts auglýst innan tíðar.
Úrslit og lokastöðu í mótinu má sjá hér á chess-results: https://chess-results.com/tnr477997.aspx?lan=1&art=1

















