LIðsmenn Íslands.

Tvær umferðir fóru fram á Ólympíumóti 16 ára og yngri í gær í Corum í Tyrklandi. Ísland tapaði fyrir Írak 1½-2½ í fyrri umferð dagsins. Vignir Vatnar Stefánsson vann, Alexander Oliver Mai gerði jafntefli en aðrar skákir töpuðust.

Í seinni umferð dagsins varð niðurstaðan 2-2 jafntefli gegn Slóvenum. Þar vann Stephan Briem en Vignir Vatnar og Benedikt Briem gerðu jafntefli.

Mótinu er framhaldið í dag með fjórðu umferð sem hefst kl. 12. Þar mætir íslenska sveitin b-sveit Tælands. Batel Goitom Haile kemur inn í liðið í dag en Benedikt hvílir.

Íslenska liðið er það 27. sterkasta af 48 liðum. Reglurnar eru þannig að í hverju liði þarf að vera a.m.k. ein stúlka sem teflir hið minnsta 3 skákir af 9.

- Auglýsing -