Það vannst góður 2½-1½ sigur á b-sveit Tælands á ólympíumóti 16 ára og yngri í gær. Vignir Vatnar Stefánsson og Stephan Briem unnu á 1. og 2. borði, Alexander Oliver Mai gerði jafntefli á því fjórða en Batel Goitom Haile tapaði. Íslenska sveitin er í 35. sæti og mætir sveit N-Makedóníu í dag. Viðureignin hefst núna kl. 12.

Íslenska liðið er það 27. sterkasta af 48 liðum. Reglurnar eru þannig að í hverju liði þarf að vera a.m.k. ein stúlka sem teflir hið minnsta 3 skákir af 9.
- Auglýsing -














