Wesley So hefur forystu gegn Magnúsi Carlsen að loknum tveim fyrstu skákum þeirra eftir hreint og beint magnaða viðureign. Fyrri skákinni lauk með jafntefli en svo vann So sigur í frábærri skák. Staðan í einvíginu er því 4,5-1,5 en sigur í lengri atskákunum (45/15) gildir þrefald. Í dag tefla þeir aftur tvær langar atskákir en á morgun tefla þeir fjórar styttri atskákir (15/2), sem gilda tvöfalt, og fjórar hraðskákir (3/2), sem gilda einfalt. Samtals eru 24 vinningar í boði og sá vinnur sem fyrr fær 12,5 vinninga.
Fabiano Caruana og Ian Nepomniachtchi tefla um þriðja sæti. Caruana vann fyrri skákina en Nepo vann þá síðari. Staðan er því 3-3.
Arkady Dvorkovich, forseti FIDE, kíkti við á skákstað í gær og fór í viðtal á Chess.com þar sem umræðuefni er Fischer-slembiskák.
Watch FIDE President Arkady Dvorkovich on Fischer Random chess from Chess on www.twitch.tv
Taflmennskan í dag hefst kl. 16:30.
Nánar á Chess.com.
















