Aðstaða til skákkennslu í Langholtsskóla er með miklum ágætum.

Í allnokkur ár hefur skákkennsla verið á dagskrá nemenda í Langholtsskóla. Af þeim sem hafa numið við skólann má nefna landsliðseinvaldinn sjálfan Ingvar Þór Jóhannesson sem leiddi skáksveit skólans á árunum í kringum 1990.

Í vetur sinnir Kristófer Gautason kennslunni. Langholtsskóli er sannarlega ekki eini skólinn sem Kristófer kennir í þennan veturinn. Kristófer kennir einnig í Austurbæjarskóla, Ísaksskóla, og Breiðholtsskóla í Reykjavík, Lindaskóla og Vatnsendaskóla í Kópavogi og Sjálandsskóla í Garðabæ.

Skipulagið í Langholtsskóla er þannig að allir nemendur í þriðja bekk sem eru rúmlega 60 í þremur bekkjum fá skákkennslu eina kennslustund á viku. Nemendur í fjórða bekk mæta í skáktíma á þriggja vikna fresti sem hluta af hringekju á móti öðrum greinum og eru þá í minni hópum. Á síðasta ári tóku sveitir frá skólanum þátt í sveitakeppnum með prýðilegum árangri.

Kristófer er öflugur skákmaður og varð Íslandsmeistari barna fyrir rúmum áratug. Eins og sjá má á fjölda skóla sem Kristófer kennir í er dagskrá hans æði þétt í viku hverri. Þá er hann einnig í kennaranámi og sinnir formennsku í Skákdeild Breiðabliks ásamt því að sitja í stjórn Skáksambandsins.  Aðspurður hvernig hann nær að sinna þessu öllu segir hann. „Þetta getur vissulega verið krefjandi en eru um leið allt skemmtileg og gefandi verkefni sem maður gefur sig allan í. Ég hugsa vel um mig, syndi í sjó og geng á fjöll svo að þrekið er fyrir hendi. Svo er gott að vita af fríi handan við hornið en um hátíðirnar fer ég til Flórída.“

Kristófer ásamt nokkrum nemendum sínum.

Fréttir af skákkennslu fleiri skóla úr Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði, Akureyri, Suðurlandi, Ísafirði og fleiri stöðum munu birtast á skak.is á næstu vikum.

- Auglýsing -