Sunway Sitges-mótið hófst í Barcelona í gær. Tveir íslenskir skákmenn taka þátt. Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2538) og alþjóðlegi meistarinn Guðmundur Kjartansson (2448). Þeir unnu báðir í gær stigalægri andstæðinga (2063-2169).
Róðurinn þynigst hjá þeim örlítið í dag. Hannes teflir þá bandaríska alþjóðlega meistarann og Íslandsvininn Justin Sarkar (2360) og verður sú skák í beinni.
- Heimasíða mótsins
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 15:30 nema lokaumferðin)
- Chess-Results
- Auglýsing -
















