Friðriksmót Landsbankans – Íslandsmótið í hraðskák – fer fram í útibúi Landsbankans við Austurstræti 11 laugardaginn 14. desember nk. Mótið hefst kl. 13 og stendur til kl. 16:30-17:00. Ríflega 100 keppendur eru skráðir til leiks.
Áhorfendur velkomnir en efsta borðinu verður varpað upp á risaskjá. Meðal skráðra keppenda eru stórmeistararnir Hjörvar Steinn Grétarsson (2702), Helgi Áss Grétarsson (2523), Bragi Þorfinnsson (2422) og Þröstur Þórhallsson (2411).
Keppendalistann má finna á Chess-Results.
Tímamörkin eru 3+2 og tefldar eru þrettán umferðir.
Skráning
Mótið er fullskipað en hægt er að skrá sig á biðlista á gula kassanum á Skák.is. Hér geta menn fylgst með því hvort þeir komist inní mótið.
Nauðsynlegt er einnig að staðfesta skráningu fyrir kl. 12:50 á skákstað. Annars verða menn fjarlægðir af keppendalista.
Þetta er sextánda árið í röð sem Landsbankinn og Skáksamband Íslands standa fyrir Friðriksmótinu í skák, en mótið er haldið til heiðurs Friðriki Ólafssyni, fyrsta stórmeistara Íslendinga. Margir af sterkustu stórmeisturum landsins hafa undanfarin ár teflt til heiðurs Friðriki.
Aðalverðlaun
- 100.000 kr.
- 60.000 kr.
- 50.000 kr.
- 30.000 kr.
- 20.000 kr.
Séu tveir eða fleiri jafnir í efsta sætinu verður stigaútreikningur* látinn ráða Íslandsmeistaratitlinum. Verðlaunafé skiptist eftir Hort-kerfinu. Aðeins verða veitt verðlaun til fimm efstu manna eftir stigaútreikning.
Aukaverðlaun
- Efsti maður með 2001-2200 skákstig 10.000 kr.
- Efsti maður með 2000 stig og minna: 10.000 kr.
- Efsta konan: 10.000 kr.
- Efsti strákur 16 ára og yngri (2003 eða síðar): 10.000 kr.
- Efsta stúlka 16 ára og yngri (2003 eða síðar): 10.000 kr.
- Efsti skákmaður 65 eða eldri (1954 eða fyrr): 10.000 kr.
- Útdreginn heppinn keppandi: 10.000 kr.
Aukaverðlaun eru miðað við alþjóðleg hraðskákstig 1. desember sl. (alþjóðleg skákstig til vara hafi menn ekki alþjóðleg hraðskákstig). Stigaútreikningur ræður séu menn jafnir og efstir.
Hver keppandi getur aðeins unnin ein aukaverðlaun og eru aukaverðlaunin valin í þeirri röð sem fram kemur að ofan.
Mótið er reiknað til alþjóðlegra hraðskákstiga.
Fyrri sigurvegarar
- 2018 – Jóhann Hjartarson
- 2017 – Hannes Hlífar Stefánsson
- 2016 – Jóhann Hjartarson
- 2015 – Þröstur Þórhallsson
- 2014 – Héðinn Steingrímsson
- 2013 – Helgi Ólafsson
- 2012 – Bragi Þorfinnsson, Hjörvar Steinn Grétarsson og Jón Viktor Gunnarsson
- 2011 – Henrik Danielsen
- 2010 – Jón Viktor Gunnarsson og Þröstur Þórhallsson
- 2009 – Héðinn Steingrímsson
- 2008 – Helgi Ólafsson
- 2007 – Héðinn Steingrímsson
- 2006 – Helgi Áss Grétarsson
- 2005 – Jón Viktor Gunnarsson og Arnar E. Gunnarsson
- 2004 – Jóhann Hjartarson og Stefán Kristjánsson
*Mótsstig reiknast svo
- Buchols -1
- Buchols
- Sonneborn-Berger
- Innbyrðis úrslit
- Flestir sigrar














