Það má eiginlega segja að uppselt hafi verið á jólaskákæfingu Skákdeildar Fjölnis fimmtudaginn 12. des. Tæplega 50 þátttakendur mættu í Rimaskóla þar sem Fjölnisæfingar fara fram og var keppt í tveimur flokkum. Tefldar voru 5 umferðir, boðið upp á myndarlega skúffuköku í skákhléi og börnin leyst út með veglegum jólaglaðningi í lok æfingar. Það eru hjónin Vala borgarfulltrúi og Steini, góðir Grafarvogsbúar, sem mæta til okkar hvert ár á jólaskákæfingu og skilja eftir eitthvað spennandi til að njóta og leika sér með.
Skákæfingar Fjölnis eru alltaf fjölmennar og líka mjög skemmtilegar. Fyrsta æfing á nýju ári verður fimmtudaginn 9. janúar.
- Auglýsing -












