Jólamót Víkingaklubbsins fór fram mánudaginn 9. desember í Víkingsheimilinu. Telfdar voru 6. umferðir með 7. mínútna umhugsunartíma. Adam Omarsson og Iðunn Helgadóttir urðu efst á mótinu með 5.5 vinninga af sex mögulegum, en Adam varð örlítið hærri á stigum. Í þriðja sæti varð svo Soffía Arndís Berndsen með 4. vinninga. Í flokki stúlkna sigraði Iðunn Helgadóttir, Soffía Berndsen varð í 2. sæti og Anna Katarína Thoroddsen í þvi þriðja. Efstur Víkinga varð Einar Dagur Brynjarsson, Gunnar Aðalsteinn varð annar og Gabríel Bjarmi þriðji.
Skákstjóri á mótinu var Ingibjörg Edda Birgisdóttir ,en henni til aðstoðar voru, Sigurður Ingason og Gunnar Fr. Rúnarsson. Alls tóku sextán keppendur þátt í mótinu, þar af sex stúlkur.
Úrslit á Chess results hér: http://chess-results.com/tnr497217.aspx?lan=1&art=1













