Henrik Danielsen að tafli á Reykajvíkurskákmótinu.

Stórmeistarinn Henrik Danielsen (2500) hefur staðið sig afar vel á alþjóðlegu móti sem gangi er í Árhúsum í Danmörku. Eftir 7 umferðir hefur Henrik hlotið 5½ vinning og er í 1.-2. sæti ásamt danska alþjóðlega meistaranum  Jesper Søndergård Thybo (2557).

Um er að ræða 10 manna lokað mót sem haldið verður áfram í dag og á morgun. Í dag teflir Henrik við alþjóðlega meistarann Bjørn Møller Ochsner (2502).

 

- Auglýsing -