Alþjóðlegi meistarinn Guðmundur Kjartansson (2448) gerði jafntefli við armenska stórmeistarann Hrant Melkumyan (2668) í sjöundu umferð alþjóðlega mótsins Sunway Sitges í Barcelona. Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2538) tapaði fyrir Jesúsi Martin Duque (2430). Gúmmi hefur 4½ en Hannes hefur 4 vinninga.
Áttunda umferð fer fram í dag. Þá teflir Gummi við franska stórmeistarann Maxime Lagarde (2655) en Hannes við indversku skákkonuna R Vaishali (2376) sem er systir Praggnanandhaa.
- Heimasíða mótsins
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 15:30 nema lokaumferðin)
- Chess-Results
- Auglýsing -















