Stórmeistarinn, Hannes Hlífar Stefánsson (2529), gerði jafntefli við aserska stórmeistarann, Nijat Abasov (2670), stigahæsta keppanda mótsins, í sjöundu umferð áskorendaflokks skákhátíðarinnar í Prag. Hannes er efstur á mótinu. Hefur 5 vinninga. Andrey Esipenko (2654) og Jorden Van Foreest (2667) koma næstir með 4½ vinning.
Stöðuna má finna á Chess-Results.
Áttunda og næstsíðasta umferð fer fram í dag. Hannes mætir þá pólska stórmeistaranum Piorun Kacper (2611).
Í áskorendaflokknum tefla tíu keppendur og þar af átta stórmeistarar. Hannes er áttundi í stigaröð keppenda en meðalstigin eru 2586 skákstig. Þess má geta að Hannes er elstur keppenda á skákhátíðinni.
- Auglýsing -
















