Helgi Áss Grétarsson hefur byrjað langbest íslensku keppendanna á alþjóðlega mótinu í Kragerö í Noregi. Helgi Áss er í 3.-5. sæti með 3½ eftir 4 umferðir en tvær umferðir fóru fram í dag.
Staða íslensku keppendanna eftir fjórar umferðir er sem hér segir:
A-flokkurinn
- 3.-5. GM Helgi Áss Grétarsson (2403) 3½ v.
- 39.-56. FM Jón Kristinn Þorgeirsson (2269), IM Davíð Kjartansson (2356), FM Hilmir Freyr Heimisson (2250) og Gauti Páll Jónsson (2027) 2 v.
- 57.-77. CM Bárður Örn Birkisson (2186) og Guðni Stefán Pétursson (2026) 1½
- 87.-92. Stefán Bergsson (2172), og FM Vignir Vatnar Stefánsson (2323) ½ v.
B-flokkurinn
Erlingur Jensson (1611), Þórður Guðmundsson (1553) og Héðinn Briem (1672) hafa allir 2 vinninga.
Umferðirnar hefjast kl. 09:15 og 14.45
- Auglýsing -
















