Strákarnir okkar að tafli á HM öldungasveita. Mynd: Heimasíða mótsins.

Íslenska liðið á HM öldungasveita vann nauman sigur á sveit Kanada í gær. Um tíma var íslenska sveitin undir ½-1½ en Margeir Pétursson (2466) og Ágúst Sindri Karlsson (2268) unnu báðir afar mikilvægra sigra í lokin. Þröstur Þórhallsson (2424) gerði jafntefli en Guðmundur S. Gíslason (2322) tapaði.

Sveitin er meðal átta sveita sem hefur unnið allar sínar þrjár viðureignir og er í sjöunda sæti eftir oddastigaútreikning.

Íslensku ungmennin mæta í dag sterkri sveit Tékka sem skipa tveir stórmeistarar og tveir alþjóðlegir meistarar. Sveit heimamanna er sú þriðja sterkasta á pappírnum á mótinu

Viðureignir Íslands í gær og í dag

- Auglýsing -