Vegna þess að mótum í raunheimum á vegum Skáksambandsins og taflfélaganna mun fækka næstu tvo mánuðina þá höfum við ákveðið að fjölga Skólanetskákmótunum þannig að þau verða nú vikulega á sunnudögum til 10. maí.
Einnig er búið að ákveða að bæta í verðlaunapottinn. Núna eru tveir ferðavinningar að verðmæti 50þús hvor.
Sá fyrri er fyrir bestan árangur í tólf bestu mótunum (dregið ef margir verða jafnir að stigum) og sá seinni fyrir bestan árangur í fimm bestu mótunum (dregið ef margir verða jafnir að stigum). Einungis er hægt að vinna einn ferðavinning.
11. umferð mótaraðarinnar fer fram sunnudaginn 5. apríl kl. 17:00. Tefldar verða sjö umferðir með 4 mínútna umhugsunartíma og 2 sek viðbót við hvern leik. Áætlað er að mótinu ljúki kl. 18:30.
Tengill á mótið: https://www.chess.com/live#t=1178343
Heimasíða mótsins: https://www.chess.com/club/skolanetskak
Staðan í mótaröðinni: https://docs.google.com/spreadsheets/d/1e_gT5iMttLxLLdPWLHZeybdmbXsfSWJqotTvW7s4Kao/edit?usp=sharing
Með 5.umferða fullt hús:
| Lemuel Goitom | Hólabrekkuskóli | 1.bekk |
| Birkir Hallmundarson | Lindaskóli | 2.bekk |
| Arnar Freyr Orrason | Lindaskóli | 3.bekk |
| Sæþór Ingi Sæmundarson | Sunnulækjarskóli | 6.bekk |
| Benedikt Þórisson | Austurbæjarskóli | 8.bekk |
| Róbert Dennis Solomon | Hlíðaskóli | 9. bekk |
Efstir í bestu 12.umferða pottinum:
| Birkir Hallmundarson | Lindaskóli | 2.bekk | 116 |
| Benedikt Þórisson | Austurbæjarskóli | 8.bekk | 114 |
| Arnar Freyr Orrason | Lindaskóli | 3.bekk | 112 |
| Gunnar Erik Guðmundsson | Salaskóli | 7.bekk | 104 |
Til gamans er líka kominn flipi í skjalið um stöðuna í mótaröðinni sem sýnir stöðuna í hverjum bekk á landsvísu.
Þið megið svo hvetja fleiri til að vera með, fimm og tólf bestu mótin telja í aðalverðlaun vetrarins og mörg mót enn eftir!
Sérstaklega langar okkur til að fá sem flesta af landsbyggðinni því þetta er kjörinn vettvangur fyrir þá til að spreyta sig.
Núna eru alls 172 grunnskólanemendur skráðir í Skólanetskákklúbbinn og 123 skráðir í mótaröðina.
1.bekk: 9 keppendur
2.bekk: 11 keppendur
3.bekk: 21 keppandi
4.bekk: 14 keppendur
5.bekk: 22 keppendur
6.bekk: 13 keppendur
7.bekk; 10 keppendur
8.bekk: 5 keppendur
9.bekk: 12 keppendur
10.bekk: 6 keppendur
Dagskráin fram á vorið:
- Sunnudaginn 15.mars kl 17-18:30
- Sunnudaginn 22.mars kl 17-18:30
- Sunnudaginn 29.mars kl 17-18:30
- Sunnudaginn 5.apríl kl 17-18:30
- Sunnudaginn 12.apríl kl 17-18:30
- Sunnudaginn 19.apríl kl 17-18:30
- Sunnudaginn 26.apríl kl 17-18:30
- Sunnudaginn 3.mai kl 17-18:30
- Sunnudaginn 10.mai kl 17-18:30













