Barna- og unglingasveit Taflfélags Reykjavíkur sigraði í dag skáksveitina Sahovska druscina frá Ljubljana í Slóveníu með 18 vinningum gegn 14. Viðureignin var vináttukeppni og fór fram á chess.com. Teflt var á 16 borðum, tvær skákir á mann með umhugsunartímanum 10 + 5.
Liðsmenn TR koma úr framhalds-, stúlkna- og byrjendahópum félagsins og hafa æft stíft í heimavistinni síðustu vikur. Slóvenski hópurinn eru krakkar á aldrinum 9-12 ára sem æfa undir leiðsögn kvenstórmeistarans Ana Srbrenic. Keppnin var hörkuspennandi en TR náði snemma forystunni og lét hana aldrei af hendi. Bestum árangri TR-sveitarinnar náðu Iðunn Helgadóttir, Adam Omarsson, Birkir Hallmundarson, Arnar Valsson, Bjartur Þórisson, Einar Tryggvi Petersen og Katrín María Jónsdóttir sem öll unnu báðar skákir sínar. Stefnt er að því að áframhald verði á keppnum með þessu tagi hjá félaginu.

Lokastaðan:

Stór hluti þessa sama hóps liðsmanna TR mun tefla fyrir hönd félagsins á NM skákfélaga sem fram fer um páskana, einnig á chess.com.

- Auglýsing -