Mynd frá Chess24.

Það gekk á ýmsu á síðari degi annarrar umferðar Boðsmóts Magnúsar Carlsen sem fram fór í gær. Bæði Fabiano Caruana (2773) og Ian Nepomniachtchi (2778) náðu að jafna metin í fjórðu skák einvíganna og hafa svo sigur í bráðabananum.

Nepo vann sigur á Maxime Vachier-Lagrave (2860) og Fabi lagði Ding Liren (2836) að velli. Þegar einvígin fara í bráðabana fær sigurvegarinn 2 stig en sá sem tapar fær 1 stig.

Magnús Carlsen og Caruana eru efstir og jafnir með 5 stig, Nakamura, MVL og Ding Liren koma næstir með 4 stig.

 

Fyrri hluti þriðju umferðar fram í dag. Carlsen mætir Caruana. Hitt einvígið er líka afar athyglisvert en þar mætast Firouzja og Nakamura.

Taflmennskan hefst kl. 14 alla daga. Tímamörkin eru 15+10.

Nánar á Chess24.

- Auglýsing -