Magnús er komin í undanúrslit. Mynd: Chess24.

Tveimur einvígum átta manna úrslita ögurskákmótsins sem fram fer á vegum skákklúbbsins í Saint Louis lauk í gærkveldi. Magnús Carlsen vann öruggan sigur á Jeffrey Ziong og sömu sögu má segja um Wesley So sem átti ekki miklum vandræðum með Maxime Vachier-Lagrave.

Átta manna úrslitum líkur í kvöld með síðari hluta einvíga Alexander Grischuk og Levon Aronian annars vegar og Leinier Dominguez og Fabiano Caruana hins vegar.

Um fyrirkomulag mótsins 

Átta skákmenn taka þátt og teflt er eftir útsláttarfyrirkomulagi. Telfdar eru tólf skákir í hverju einvígi með tímamörkunum 10+5.

Skákir nr. 5-6 og 11-12 og er hins vegar skokallaðar ögurskákir (clutch games). Skákir 5 og 6 gilda tvöfalt og skákir 11 og 12 gilda þrefalt. Það eru því 18 vinningar í boði í hverju einvígi.

Nánar um mótið á Chess24.

- Auglýsing -