Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2542) gerði jafntefli við tékkneska alþjóðlega meistarann Tomas Kraus (2449) í 5. umferð alþjóðlega mótsins í Budejovice í Tékklandi. Hannes hefur 2 vinninga.
Sjötta umferð fer fram í dag. Þá teflir Hannes við ungverska stórmeistarann Oliver Mihok (2552).
Tíu keppendur, og þar á meðal fjórir stórmeistarar, taka þátt og tefla allir við alla. Hannes er fjórði í stigaröð keppenda.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 14)
- Auglýsing -















