Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2542) gerði jafntefli við ungverska stórmeistarann Oliver Mihok (2552) í 6. umferð alþjóðlega mótsins í Budejovice í Tékklandi. Hannes hefur 2,5 vinning.
Sjöunda umferð fer fram í dag. Þá teflir Hannes við tékkneska stórmeistarann Peter Michalik (2585).
Tíu keppendur, og þar á meðal fjórir stórmeistarar, taka þátt og tefla allir við alla. Hannes er fjórði í stigaröð keppenda.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 14)
- Auglýsing -
















