Ísland tekur þátt í 2. deild Ólympíumótsins í netskák fer fram 14.-16. ágúst nk. Þátt taka 50 lið í 2. deild og er skipt í fimm tíu liða riðla.
Í hverri umferð tefla sex skákmenn frá hverri þjóð (2 karlar og 2 konur, strákur og stúlka 20 ára og yngri). Jafnmargir varamenn í hverjum flokki. Í hverju liði eru því sex karlar og jafn margar konur.
Í liði Íslands eru því sterkustu skákmenn og skákkonur landsins sem og okkar efnilegustu ungmenni af báðum kynjum.
| Flokkur | Aðalmenn | Varamenn |
| Karl 1 | Jóhann Hjartarson, stórmeistari | Bragi Þorfinnsson, stórmeistari |
| Karl 2 | Guðmundur Kjartansson, alþjóðlegur meistari | Helgi Áss Grétarsson, stórmeistari |
| Kona 1 | Lenka Ptácníková, stórmeistari kvenna | Jóhanna Björg Jóhannsdóttir |
| Kona 2 | Hallgerður Helga Þorsteinsd., FIDE-meistari kvenna | Lisseth Acevedo Mendez, alþjóðlegur meistari kvenna |
| Strákur | Vignir Vatnar Stefánsson, FIDE-meistari | Birkir Ísak Jóhannsson |
| Stúlka | Batel Goitom Haile | Iðunn Helgadóttir |
Í riðli Íslands tefla meðal annars lið Danmerkur, Svíþjóðar og Noregs og Króatíu. Þrjár umferðir (atskák) fara fram hvern dag og hefjast þær kl. 14, 15 og 16. Þrjú efstu liðin í hverjum riðli ávinna sér rétt til að tefla í fyrstu deild þar sem allra sterkustu landslið heims taka þátt.
Íslensku keppendurnir tefla í skákhöll TR, Faxafeni 12. Bein útsending verður frá mótinu á netinu sem verður nánar kynnt þegar nær dregur!


















