Átján íslensk ungmenni tefla fyrir Íslands hönd á EM ungmenna í netskák sem fram fer á netinu 18.-20. september nk. Það eru Skáksamband Íslands í samvinnu við Skákskóla Íslands sem taka þátt í þessu afar skemmtilega og athyglisverða verkefni Skáksambands Evrópu.
Teflt er í fjórum aldursflokkum, u12, u14, u16 og u18 í opnum flokki og í stelpuflokki – alls átta flokkum. Íslensku fulltrúarnir tefla í húsakynnum Skákskóla Íslands.
Beinar útsendingar verða frá mótinu í umsjón Ingvars Þórs Jóhannessonar og Björns Ívars Karlssonar. Tenglar á útsendingarnar verða aðgengilegir á skak.is á morgun. Fulltrúar Íslands eru sem hér segir:
Strákar
U18
- FM Vignir Vatnar Stefánsson
- Birkir Ísak Jóhannsson
- Alexander Oliver Mai
U16
- Kristján Dagur Jónsson
- Örn Alexandersson
- Benedikt Þórisson
U14
- Benedikt Briem
- Gunnar Erik Guðmundsson
- Ingvar Wu Skarphéðinsson
U12
- Markús Orri Óskarsson
- Matthías Björgvin Kjartansson
- Mikael Bjarki Heiðarsson
Stelpur
U14
- Batel Goitom Haile
- Iðunn Helgadóttir
- Arna Dögg Kristinsdóttir
U12
- Guðrún Fanney Briem
- Þórhildur Helgadóttir
- Katrín María Jónsdóttir
Liðsstjórn er í höndum Skákskóla Íslands. Yfirliðsstjóri er Helgi Ólafsson skólastjóri.
Nánari upplýsingar um mótið má finna hér: https://www.europechess.org/european-online-youth-individual-team-chess-championships-2020-regulations/















