Stjórn SÍ var með stjórnarfund á Zoom í gær, 20. október.
Í morgun var eftirfarandi upplýsingapóstur sendur til aðildarfélaga SÍ.
—————
Til forráðamanna aðildarfélaga SÍ.
Eins og þið eflaust vitið gera nýjar sóttvarnarreglur allt skákmótahald á höfuðborgarsvæðinu ógerlegt til 4. nóvember komi ekki til breytinga á þeim.
Sjá: https://skak.is/2020/10/19/skakmotahald-a-hofudborgarsvaedinu-liggur-nidri-til-4-november/
Stjórn SÍ hittist á stjórnarfundi í gær 20. október 2020. Staðan tekin og nýr grunnur að mótadagskrá sambandsins lagður til áramóta.
- Íslandsmótið í Fischer-slembiskák – haldið á netinu á meðan samkomutakmörkunum stendur. Væntanlega í næstu viku.
- Íslandsmót ungmenna (u8-u16) – stefnt á 14. nóvember. Stefnt er á Akureyri sem mótsstað sem fyrr.
- Unglingameistaramót Íslands (u22)/Meistaramót Skákskólans – stefnt á helgina 20.-22. nóvember.
- Íslandsmót barna- og unglingasveita – stefnt á laugardaginn 28. nóvember í Garðabæ.
- Friðriksmótið/Íslandsmótið í hraðskák – haldið 12. desember.
- Íslandsmótið í atskák – stefnt er á að halda 26. og 27. desember. Möguleiki að flytja framar ef gluggi myndast.
- Íslandsmót öldunga (+65) – óákveðið
- Skákbúðir – að öllum líkindum í janúar 2021.
Í dag bárust svo fréttir um HM ungmenna í netskák – þar sem Evrópuundanrásir eru á dagskrá, 7.-9. desember. Sjá nánar hér.
Kveðja,
Stjórn SÍ
- Auglýsing -

















