Wesley So (2741) er bandarískur meistari en meistaramótið í ár fór fram á netinu 26.-29. október. Tefld var atskák. Allir sterkustu skákmenn Bandaríkjanan að Fabiano Caruana tóku þátt en hafnaði þátttöku vegna áskorendamótsins sem átti að hefjast í dag. Jeffery Zong (2730) varð annar og Ray Robson (2605) þriðji. Hikaru Nakamura (2829) náði sér ekki á strik og endaði í 7.-8. sæti.
Irena Krush varð skákmeistari kvenna og Joel Benjamin varð skákmeistari öldunga en þau mót fóru einnig frá á netinu.
- Auglýsing -















