Emilía, Guðrún Fanney, Iðunn, Þórhildur og Batel. Arna Dögg teflir fyrir norðan.

NM stúlkna í netskák hófst í gær með þremur umferðum. Sex íslenskar stúlkur taka þátt í yngsta flokknum (u13).

Batel Goitom Haile hefur 2 vinninga. Emilía Embla B Berglindardóttir og Iðunn Helgadóttir hafa 1 vinning en Guðrún Fanney Briem og Arna Dögg Kristinsdóttir hafa ekki náð sér á strik og eru ekki komnar á blað.

Arna Dögg teflir frá Akureyri!

Arna Dögg teflir frá Akureyri en hinar fimm saman úr húsnæði Skákskólans.

Í dag fara fram fram tvær síðustu umferðirnar og hefst taflmennskan núna kl. 8:30.

Hægt að fylgjast með mótinu hér:  https://lichess.org/swiss/ZF6FkrD3

Tefldar eru fimm umferðir með tímamörkunum 60+30. Umferðir dagsins fara fram sem hér segir:

  • 4. umferð, sunnudaginn, 13. desember, kl. 08:30
  • 5. umferð, sunnudaginn, 13. desember, kl. 12:30

 

- Auglýsing -