
Unglingameistaramót Íslands (u22) – Meistaramót Skákskóla Íslands fer fram um helgina. Mótið er sérstakt að því leyti að hér um að ræða 2020-mótið sem ekki náðist að halda í fyrra. Mótshaldarar lofa því að hér sé um ræða síðasta skákmótið hérlendis sem kennt er við ártalið 2020!
Jafnframt er þetta í fyrsta sinn sem þessi mót eru sameinuð. Sautján keppendur taka þátt. Eftir tvær umferðir eru fimm keppendur efstir og jafnir.
Í fyrstu tveimur umferðunum eru tefldar atskákir. Í fyrstu umferð unnu hinir stigahærri ávallt þá stigalægri. Í annarri umferð hélt það lögmál að mestu leyti en þó með þeim undantekningum að Benedikt Briem (1864) vann Pétur Pálma Harðarson (2086) og Adam Omarsson (1493) lagði Benedikt Þórisson (1642) að velli.
Gauti Páll Jónsson (2081), Benedikt Briem (1864), Vignir Vatnar Stefánsson (2314), Símon Þórhallsson (2222) og Jóhann Arnar Finnsson (1736) hafa fullt hús vinninga.
Í síðustu fjórum umferðunum verða tefldar kappskákir. Um helgina verður fyrri skákin tefld kl. 11 og sú síðari kl. 17. Alls eru því tefldar sex umferðir. Allar skákir mótsins eru sýndar þráðbeint!
Teflt er við glæsilegar aðstæður í Rúgbrauðsgerðinni, Borgartúni 6. Um að leið og keppnisstaður er gefinn upp er rétt að taka fram að vegna sóttvarnareglna eru áhorfendur ekki velkomnir á skákstað – en það væsir ekki keppendur!















