Andri Freyr. Mynd: Heimasíða SA

Í gær, 11. febrúar var tefld fjórða umferð í A-flokki og sjötta í B-flokki. Að þeim loknum eru þrjár umferðir eftir í hvorum flokki.

Úrslit urðu sem hér segir:

A-flokkur:

  • Karl-Andri              0-1
  • Hjörleifur-Eymundur     0-1
  • Sigurður-Gunnlaugur     1-0
  • Rúnar-Stefán           frestað

Chess-Results.

B-flokkur:

  • Markús-Alexía           1-0
  • Mikael-Sigþór           1-0
  • Jökull Máni-Emil        1-0
  • Gunnar-Tobias           0-1
  • Jóhann-Brimir           1-0

Eins og fyrr var víða hart barist; skák Sigurðar og Gunnlaugs var mjög tvísýn og í lokin gat sá síðarnefndi líklega náð jafntefli með tvöfaldri hróksfórn, en sást yfir það. Í B-flokki var Brimir nálægt sigri gegn Jóhanni, en lék illa af sér og fékk taoað tafl.

Andri er nú einn efstur í A-flokki, en Rúnar á inni frestaða skák og getur náð honum að vinningum. Þeir félagar eigast svo við í næstu umferð og ræður sú skák líklega úrslitum um sigurinn á mótinu. Í B-flokki hafa Markús og Tobias sem fyrr forystuna með 5,5 vinninga, en Mikael kemur á hæla þeim með 5.

Næsta umferð í báðum flokkum verður á sunnudag og hefst kl. 13. Öll úrslit, stöðuna og næstu viðureignir má finna á chess-results. 

Af heimasíðu SA.

- Auglýsing -