Íslandsbikarinn hefst núna kl. 14. Átta af sterkustu skákmenn landsins tefla útsláttarkeppni um laust sæti á næsta heimsbikarmóti í skák sem fram fer í Sochi í Rússlandi, síðsumars/haust. Taflmennskan fer fram í Landsbankanum Austurstræti.

Taflmennskan fer fram 6.-14. mars. Tefldar eru tvær kappskákir og svo til þrautar með styttri umhugsunartíma verði jafnt eftir kappskákirnar.

Pörun dagsins

  1. Vignir – Hjörvar
  2. Hannes – Bragi
  3. Jóhann – Helgi Áss
  4. Guðmundur – Margeir

Mótið er beint á öllum helstu miðlum heims eins og Chess24, Chess.com, FollowChess og Chessbomb.

Bein lýsing (Björn Ívar og Ingvar) – hefst um kl. 15

- Auglýsing -