Víkingaklúbburinn minnir á föstudagsmótið í kvöld kl 20.00. Telfdar verða skákir með umhugsunartímanum 4 plús 2.
Slóð hér: https://www.chess.com/play/arena/1092541
Að gefnu tilefni er rétt að taka fram að til að geta tekið þátt, þurfa keppendur að vera skráðir á team Iceland, á chess punktur com.
Síðasta föstudag var seinna Páskamótið, föstudagslangamótið með tímamörkunum 5 plús 0. Davíð Kjartansson sigraði, annar varð Örn Leó Jóhannsson og þriðji varð Vignir Vatnar Stefansson. Þrjátíu keppendur tóku þátt.
- Auglýsing -















