Nóg er að gera hjá íslenskum stórmeisturunum þessa dagana. Við höfum þegar sagt frá þátttöku Hjörvars á Heimsbikarmótsinu í Sochi hér á Skák.is.
Henrik Danielsen (2516) vann langt-helgarskákmót sem lauk í Köge í Danmörku í gær. Henrik hlaut 8 vinninga í 9 skákum. FIDE-meistarinn Hilmir Freyr Heimisson (2352) varð í 5.-11. sæti með 6 vinninga.
Henrik hækkar um 5 fyrir stig fyrir frammistöðu sína en Hilmir lækkar um 8 stig.
54 keppendur tóku þátt. Henrik var stigahæstur keppenda en Hilmir var fjórði í stigaröð keppenda.
Stórmeistarinn, Hannes Hlífar Stefánsson (2517) teflir alþjólegu móti í Prag í Tékklandi. Hannes vann stórmeistarann Vitezlav Rasis (2437) í annarri umferð og hefur fullt hús.
Um er að ræða 10 manna lokaðan flokk. Meðalstigin eru 2388 skákstig og er Hannes stigahæstur keppenda.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 14)
Guðmundur Kjartansson (2496) teflir á minningarmóti um Najdorf sem fram fer í Varsjá í Póllandi.
Gummi hefur 1½ vinning eftir 2 umferðir.
Um er að ræða 174 manna flokk og er Guðmundur níundi í stigaröð keppenda.
- Heimasíða mótsins
- Úrslitaþjónusta
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 15)
















