Omar Salama og Hjörvar Steinn á skákstað.

Fyrsta umferð (206 manna úrslit) Heimsbikarmótsins í skák hefst í dag. Hjörvar Steinn Grétarsson mætir hvít-rússneska stórmeistaranum Kirill Stupak (2485) og hefur hvítt í fyrri skákinni. Tefldar eru tvær kappskákir – og verði jafnt verður teflt til þrautar með skemmri umhugsunartíma á degi 3.

Omar Salama er aðastoðaryfirdómari mótsins og mun sjá til þess að allt fari vel fram.

Ingvar Þór Jóhannesson verður með Skákvarpið. Gera má fyrir að hann byrji á milli 13 og 14.

- Auglýsing -