Þrír íslenskir stórmeistarar eru þessa dagana að tefla á alþjóðlegum mótum. Hannes Hlífar Stefánsson í Tékklandi, Guðmundur Kjartansson í Póllandi og Henrik Danielsen í Danmörku. Hjörvar Steinn Grétarsson mætti í gær til Sochi í Rússlandi þar sem teflir á á Heimsbikarmótinu í skák.
Stórmeistarinn, Hannes Hlífar Stefánsson (2517) hóf í gær þátttöku á alþjólegu móti í Prag í Tékklandi. Hann vann þýska alþjóðlega meistarann Frank Bracker (2391) í fyrstu umferð.
Um er að ræða 10 manna lokaðan flokk. Meðalstigin eru 2388 skákstig og er Hannes stigahæstur keppenda.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 14)
Guðmundur Kjartansson (2496) hóf þátttöku á minningarmóti um Najdorf sem hófst í Varsjá í gær. Hann vann Joanna Furtak (1999) í gær.
Um er að ræða 174 manna flokk og er Guðmundur níundi í stigaröð keppenda.
- Heimasíða mótsins
- Úrslitaþjónusta
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 15)
Henrik Danielsen og Hilmir Freyr Heimisson tefla í Köge í Danmörku. Lokaumferðin fer fram í dag. Henrik er efstur með 7 vinninga að loknum átta umferðum. Hilmir Freyr er í 2.-5. sæti með 6 vinninga.
54 keppendur taka þátt. Henrik er stigahæstur keppenda en Hilmir er fjórði í stigaröð keppenda.
- Heimasíða mótsins
- Úrslitaþjónusta
- Engar beinar útsendingar
Hjörvar Steinn Grétarsson hefur taflmennsku á heimsbikarmótinu í Sochi á morgun. Hann mætir hvít-rússneska stórmeistaranum Kirill Stupak (2485) í fyrstu umferð. Skákvarpið verður beinar útsendingar frá Hjörvari.
- Heimasíða mótsins
- Úrslitaþjónusta
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 12)
- Skákvarpið

















