Alþjóðlegi meistarinn, Vignir Vatnar Stefánsson (2361), teflir á alþjóðlegu móti í Arandjelovac í Serbíu.
Í gær tapaði hann fyrir indverska FIDE-meistaranum Balaji Daggupati (2377). Vignir hefur 2 vinninga að loknum fimm umferðum og er í 6.-8. sæti. Tvær umferðir eru tefldar í dag.
Vignir teflir í þremur 10 manna lokuðum flokkum í Serbíu. Meðalstigin í fyrsta mótinu eru 2400 skákstig. Vignir er næststigalægstur keppenda.
- Engin heimasíða
- Chess-Results
- Engar beinar útsendingar
- Auglýsing -













