Nú er ljóst hverjir mætast í undanúrslitum á Heimsbikarmótinu. Sergey Karjakin tryggði sér síðasta farmiðann í undanúrslitin með sigri á Sam Shankland í bráðabana.

Einvígi þeirra Karjakin og Shankland var æsispennandi og engin skák endaði með jafntefli! Shankland vann fyrstu bráðabanaskákina með snaggarlegum leik, Bxc6 í endatafli

Eins og í kappskákinni kom það í hlut Karjakin að jafna metin með hvítu mönnunum. Shankland greip eitrað peð á a2, ekki ósvipað og landi hans Fischer gerði um árið á h2 gegn Spassky. Biskup Shanklands átti ekki heimangegnt frekar en biskup Bobby!

Framlengja þurfti því um tvær 10 mínútna skákir til viðbótar. Í þetta skiptið hóf Karjakin leikin með hvítu mönnunum og aftur lenti Shankland í erfiðleikum í Sikileyjarvörninni. Tvær skákir í röð var Shankland óverjandi mát á d8 reitnum!

Sjötta skákin reyndist sú síðasta. Shankland fékk ekkert út úr byrjuninni og neyddist til að sprengja sig í steindauðu drottningarendatafli og fór svo að Karjakin vann síðustu skákina einnig og þar með einvígið.

FIDE meistarinn Ingvar Þór Jóhannesson fór yfir bráðabanann á YouTube rás sinni á ensku hér:

Kvennamegin eru þær rússnesu Aleksandra Goryachkina og Alexandra Kosteniuk komnar í úrslit.

Goryachkina lagði hina sterku úkraínsku skákkonu, Önnu Muzychuk. Sú rússneska þjarmaði að stallsystur sinni í hróksendatafli eftir Grunfeldsvörn í byrjuninni. Sannkallaður Karpov stíll yfir þessu endatafli!

Skákdrottningin sjálf, Alexandra Kosteniuk, sveik ekki aðdáendur sína í undanúrslitunum. Hun fórnaði skiptamun snaggaralega í miðtaflinu og lagði kínverska áskorandann fyrrverandi, Tan Zhongyi að velli.

Rússarnir voru ánægðir með daginn!

Hlé er á taflmennskunni í dag, laugardag en fjörið heldur áfram á sunnudaginn!

- Auglýsing -