Vignir að tafli á Íslandsmóti skákfélaga. Mynd: Ómar Óskarsson.

Vignir heldur ennþá góðum dampi í þriðja móti sínu í Arandjelovac í Serbíu. Jafntefli varð niðurstaðan í stuttri skák gegn Azerska stórmeistaranum Azer Mirzoev (2430).

Vladimir Lazarev leiðir mótið með 3,5 vinning en Vignir er í öðru sæti með 3 vinninga.

Vignir teflir í þremur 10 manna lokuðum flokkum í Serbíu. Meðalstigin í þriðja mótinu, sem var að hefjast, eru 2387 skákstig sem er örlítið veikara en fyrri mótin. Vignir er þriðji stigalægstur keppenda.

Skák dagsins:

 

Hér er einnig skák Vignis í 3. umferð

- Auglýsing -