Nú styttist óðum í Kviku Reykjavíkurskákmótið – Evrópumót einstaklinga í skák. Leikar hefjast á fimmtudaginn og er ætlunin hér að kynna helstu stjörnur og vonarstjörnur til leiks!

Gawain eftir sigur á hraðskákmóti Reykjavíkurskákmótsins með greinarhöfundi

Stigahæstur erlendu keppendanna er Íslandsvinurinn Gawain Jones (2684). Jónes hefur verið nokkur stöðugur í kringum 2700 stiga múrinn í langan tíma og er fastamaður í enska landsliðinu. Jones hefur oft teflt á Íslandi, bæði á Reykjavíkurskákmótum og eins sem liðsmaður Goðins-Máta og svo Hugins.

Gawain hefur einnig getið sér gott orð sem höfundur. Væntanlegt er stórt námskeið um kóngsindverska vörn frá honum á Chessable en Jones hefur teflt þá byrjun nánast allan ferilinn.

Næstur á blaði er Armeninn Gabriel Sargissian (2682). Sargissian er hluti af gullkynslóð Armena og er hvorki meira né minna en þrefaldur ólympíumeistari með þeim! Einhvern veginn virðist Sargissian alltaf tefla eins og ofurstórmeistari í liðakeppnum en einstaklingsárangur hans hefur e.t.v. ekki náð sömu hæðum.

Jóhann ásamt David Navara. Þegar myndin var tekin var Navara 17. sterkasti skákmaður heims.

Þriðji stigahæsti keppandi mótsins en sögulega sá stigahæsti er Tékkinn geðþekki David Navara (2675). Navara hefur hæst náð stigum í kringum 2750 og hann er vafalítið sterkasti keppandi mótsins en kannski ekki í sínu besta formi ef mið er tekið af skákstigum hans. Navara teflir alltaf skemmtilega og er þekktur fyrir hárbeitta útreikninga.

Navara mætti Friðrik Ólafssyni á mótinu árið 2013 og úr varð stórskemmtileg skák þar sem Tékkinn slapp með skrekkinn!

Fjórðu og fimmtu stigahæstu keppendur mótsins koma báðir frá Þýskalandi. Matthias Bluebaum (2674) er nýstirnið af þeim tveimur og ein af vonarstjörnum Þjóðverja. Bluebaum hefur þegar hlotið eldskírn í elítumóti og teflt við sterkustu skákmenn heims. Fyrrverandi Rúmeninn Liviu-Dieter Nisipeanu (2671) er heldur reynslumeiri og er fyrrverandi Evrópumeistari í skák.

Nils Grandelius er ávallt mikll aufúsgestur hérlendis.

Næstu menn á blaði eru allir Íslandsvinir. Nils Grandelius (2666) hefur komið hér oftar en hann hefur líklegast sjálfur tölu á, tekið þátt í fjölmörgum Reykjavíkurskákmótum og tefldi hér um árabil með Taflfélagi Vestmannaeyja með góðum árangri. Nils hefur nú um árabil verið sterkasti skákmaður Svía og er aldrei langt frá 2700 stiga múrnum. Constantin Lupulescu (2659) vann sigur á síðasta Reykjavíkurskákmóti og kann því líklega vel við sig hér. Hann tefldi fyrr á árinu í ofurskákmóti í Rúmeníu og hlaut þar mikla eldskírn í að tefla við elítuna. Alexander Donchenko (2657) er önnur vonarstjarna sem teflir fyrir Þjóðverja. Hann kom hér fyrr á árinu og tefldi með Selfyssingum á Íslandsmóti Skákfélaga.

Fjölmargir sterkir skákmenn koma í kjölfarið enda 70 stórmeistarar skráðir til leiks! Nijat Abasov (2656) og Rauf Mamedov (2654) eru báðir sterkir Azerskir stórmeistarar og Ivan Saric (2653) frá Króatíu er fyrrverandi Evrópumeistari og skákmaður sem mörgum finnst eiga meira inni. Maxime Lagarde (2631) er ekki bara næstum nafni hins fræga Maxime Lagrave, hann er einnig feykisterkur skákmaður og hefur teflt á fyrsta borði fyrir frönsku sveitina þegar MVL hefur vantað.

Ungstirnin eru fjölmörg, þar fremstur á blaði er hinn feyki efnilegi Vincent Keymer (2602) frá Þýskalandi. Sá hefur verið undir verndarvæng Peter Leko og er mikið efni þar á ferð. Einn keppandi á mótinu undir 20 ára mun vinna sér sæti á Grand Swiss mótinu og Keymer verður þar að teljast líklegur. Ekki má afskrifa Velimir Ivic (2571) frá Serbíu en sá sló í gegn á Heimsbikarmótinu og lagði meðal annars Andreikin að velli þar.

Fyrir „heimavarnarliðinu“ fer stigahæsti skákmaður Íslands, Íslandsmeistarinn og Íslandsbikarmeistarinn, Hjörvar Steinn Grétarsson (2603). Nokkuð góð þátttaka er meðal íslensku stómeistarana og auk Hjörvars eru þeir Hannes Hlífar Stefánsson (2519), Héðinn Steingrímsson (2519), Jóhann Hjartarsson (2519), Guðmundur Kjartansson (2470), Helgi Áss Grétarsson (2447) og Bragi Þorfinnsson (2439). Athyglisvert að þrír íslensku stómeistarana eru allir með sömu stigatölu!

Íslensku ungstirnin láta sig ekki vanta og gaman verður að fylgjast með Vigni Vatnari Stefánssoni (2371) sem hefur farið mikinn undanfarið ásamt fleiri ungum og efnilegum skákmönnum.

Símon Þórhallsson (2199) kemur ferskur eftir magnaðan sigur í Áskorendaflokki sem og Lenka Ptacnikova (2109) sem vann sér sæti í Landsliðsflokki.

Þorsteinn er genginn til liðs við TV.

Fjölmargir skákmenn „á viskualdrinum“ ætla að „munda sleggjuna“ og gaman að sjá menn eins og Þorstein Þorsteinsson (2260) og Áskel Örn Kárason (2270) skráða til leiks.

Ljóst er að menn munu selja sig dýrt fyrir sætin 23 á Heimsbikarmótinu og ljóst að allir vilja sanna sig og íslensku keppendurnir munu keppast um að ná höfuðleðrum erlendu meistarana, það eru skemmtilegir dagar framundan!

- Auglýsing -