Reykjavíkurskákmótið og Evrópumót Einstaklinga 2021

Kviku Reykjavíkurskákmótið – EM einstaklinga í skák hefst 26. ágúst nk. og stendur til 5. september. Tefldar verða 11 umferðir á 11 dögum. Teflt er í Hótel Natura (áður Loftleiðum).

Sjötíu stórmeistarar

Til leiks eru skráðir 184 skákmenn frá 36 löndum. Á keppendalistanum eru hvorki fleiri né færri en 70 stórmeistarar. Aldrei áður hafa svo margir verið með á Reykjavíkurskákmóti. Nánast allir sterkustu skákmenn landsins taka þátt.

Mótið hékk á bláþræði

Mótið hefur verið skipulagt við sérstakar aðstæður og ríflega 25 keppendur hafa verið í sóttkví á keppnishóteli. Ýmislegt gekk á í undirbúningi mótsins og á ýmsum tímapunktum töldu mótshaldarar fátt annað í stöðunni en að aflýsa mótinu degi síðar. Aldrei var þó það skref tekið – sem betur fer. Í eðlilegu árferði hefðu þó keppendur verið væntanlega um tvöfalt fleiri.

Reykjavíkurskákmótið hefur farið fram reglulega frá 1964 þar til í fyrra þegar mótið féll niður. Á tveggja ári fresti 1964-2008 og árlega 2009-2019. Aflýsa þurfti mótinu í fyrra með skömmum fyrirvara vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar. Var mótið þá eitt fyrsta fórnarlamb þess heimsfaraldurs í skákheimum. Það er hins vegar ánægjulegt að mótið núna er eitt af fyrstu stórmótum heims síðan heimsfaraldurinn hófst.

Sjö íslenskir stórmeistarar

Stigahæstur keppenda er enski stórmeistarinn Gawain Jones. Næststigahæstur er armenski stórmeistarinn Gabriel Sargissian, sem er þrefaldur ólympíumeistari í skák. Hluti armenska undursins í skák.

Sjá annars umfjöllun Ingvars Þór um helstu persónur og leikendur. 

Ríflega 60 íslenskir skákmenn taka þátt. Þeirra á meðal eru sjö stórmeistarar. Þeirra stigahæstur er Hjörvar Steinn Grétarsson en auk hans eru Hannes Hlífar Stefánsson, Héðinn Steingrímsson, Jóhann Hjartarson, Guðmundur Kjartansson, Helgi Áss Grétarsson og Bragi Þorfinnsson meðal keppenda.

Að því að mótið er jafnframt Evrópumót einstaklinga ávinna 23 efstu menn mótsins  sér keppnisrétt á Heimsbikarmótinu í skák sem fram fer 2023 svo mikið er í húfi.

Sóttvarnir verða miklar á mótinu og má nefna að allir keppendur og starfsmenn þurfa að fara í skimun að lokinni fimmtu umferð. Sú skimum verður í boði Íslenskrar erfðagreiningar.

Ivan Sokolov með skákskýringar

Ivan Sokolov sér um skýringar!

Vegna takmarkana verður teflt í fjórum mismunandi sölum í Natura. Áhorfendur geta ekki farið í skáksalina en geta fylgst með skákskýringum Ivans Sokolovs í bíósalnum. Honum til aðstoðar verða margir af sterkustu skákmönnum landsins sem ekki tefla og má þar nefna stórmeistarana Helga Ólafsson, Þröst Þórhallsson og alþjóðlega meistarann Björn Þorfinnsson.

Skýringar Ivans og félaga verða að sjálfögðu aðgengilegar á vefnum.

Forsætisráðherra mætir!

Mótið verður sett rétt fyrir kl. 15 á fimmtudaginn. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, setur mótið og leikur fyrsta leik þess.

Auðvelt verður fyrir skákáhugamenn að fylgjast með mótinu í gegnum netið en beinar útsendingar frá helstu skákum sem og skýringar Ivans Sokolov verður að finna á www.reykjavikopen.com.

Aðalstyrktaraðilar mótsins eru Kvika eignastýring, Reykjavíkurborg og ríkisstjórn Íslands.

- Auglýsing -