Goðinn
Skákfélagið Goðinn boðar hér með til félagsfundar og fyrstu skákæfingar í raunheimum í langan tíma, nk. mánudagskvöld 30. ágúst kl 20:30 í Framsýnarsalnum á Húsavík. Fundurinn og skákæfingin er öllu skákáhugafólki opinn.
Á fundinum verður ákveðið hvernig vetrarstarfinu verður háttað, eins og dagskrá vetrarinsoft skákæfingar fara fram og hvar (Framsýn og/eða Tornelo) og svo auðvitað að skipuleggja Íslandsmót skákfélaga, en aðeins rétt rúmur mánuður er í það.
Tillaga að dagskrá liggur fyrir á heimasíðu félagsins https://godinn.is
Að fundi loknum fer fyrsta skákæfingin fram.
- Auglýsing -