Crazy Culture skákmót Vinaskákfélagsins var haldið mánudaginn 23 ágúst 21, í Vin að Hverfisgötu 47. Þetta er í 3ja sinn sem mótið var haldið, en í fyrra var það haldið á netinu.
Tefldar voru 6 umferðir með 7 mínútur á skák.
Skákdómari var Róbert Lagerman en mótstjóri var Hörður Jónasson.
Alls voru 12 skákmenn sem mættu til leiks og var barist af hörku.
Bryndís starfsmaður í Vin Dagsetur lék fyrsta leikinn fyrir Ólaf Þórsson gegn Sturlu Þórðarsonar.

Hlé var gert eftir 4 umferðir og gæddu skákmenn sér á wöflum og kaffi að hætti Inga Hans.
Góð verðlaun voru en þau voru bæði fyrir 1-3 sæti og einnig fyrir fyrstu 3 sæti meðlima Vinaskákfélagsins.
3 efstu sætin voru:
- Sæti. Ólafur Þórsson 5 vinninga (og fékk hann bikar til eignar.)
- Sæti. Róbert Lagerman 4,5 vinninga.
- Sæti. Gauti Páll Jónsson 4,5 vinninga.
3 efstu sætin fyrir félaga í Vinaskákfélaginu:
- Sæti. Ólafur Þórsson og fær hann Crazy Culture farandbikar 2021 áritaðan.
- Sæti. Róbert Lagerman
- Sæti. Hjálmar Sigurvaldason
Þið getið séð öll úrslit hér: Crazy Culture skákmót Vinaskákfélagsins
Kveðja, Hörður Jónasson
Ps. Myndir frá mótinu koma síðar inn á Heimsíðu Vinaskákfélagsins í Myndasafnið.
















