Hinn ungi Þjóðverji Vincent Keymer kom sér fyrir á toppnum á Kviku Reykjavíkurskákmótinu / EM einstaklinga ásamt tveimur öðrum með miklum þrjósku og seiglu sigri á Tékkanum viðkunnalega, David Navara. Ivan Sokolov vildi meina að Keymer hefði í raun þurft að vinna skákina tvisvar!

Skák þeirra félaga var skemmtilegasta og mest spennandi viðureign umferðarinnar. Keymer virtist koma vel frá byrjuninni og Navara lagði líklega of mikið á stöðuna og fékk verra. Keymer virtist svo halda áfram að yfirspila Tékkann. Rétt fyrir tímamörk í 40. leik þurfti hann í raun bara að finna 40…Dh5 og skákin er nánast búin.

Hann hefði náð tímamörkunum og getað fundið réttu leikina. Þess í stað henti hann öllu frá sér með 40…Da1?? sem hleypti Navara atur inn með 41.Dd6 sem hótar máti á f8. Svartur virðist þurfa að þráskáka. Þá var reyndar komið að Navara og hann valdi vitlausan reit fyrir kónginn eftir 41…Dd1+ 42.Ke3?? þegar 42.Kf4 var réttur leikur.

Spennan var ennþá mikil, tímahrak og opin staða. Báðir keppendur voru sjáanlega stressaðir en Keymer hélt alltaf betri tíma og stöðu. Loka mistökin komu svo frá Navara 54.Dd1??

Keymer svaraði um hæl 54…Dxc4+! og eftirleikurinn var auðveldur

Dana Reizniece-Ozola setti umferðina en hún er framkvæmdastjóri hjá FIDE ásamt því að vera kvenstórmeistari og fyrrverandi ráðherra í Lettlandi! Hún bætti mögulega við ferilskránna en hún lék fyrsta leiknum tvisvar í sömu umferðinni! Fyrst lék hún fyrsta leiknum fyrir Rauf Mamedov á efsta borði og svo var haldið í hinn keppnissalinn þar sem fyrsta leiknum var leikið á 41. borði hjá Kaasen og Hjörvari Steini.

Dana leikur 1.e4 fyrir Mamedov
Aftur 1.e4 fyrir Norðmanninn Kaasen gegn Hjörvari

Rauf Mamedov og Anton Demchenko sömdu tiltölulega snemma á efsta borði og þeir deila forystunni með Keymer með 6,5 vinning af 8. Mikið var um jafntefli á efstu borðum og mörg þeirra stutt.

Yilmaz var með teóríuna á hreinu í dag

Mustafa Yilmaz sýndi að hann var með allt á hreinu í eitraða peðinu í Najdorf.

Hér héldu margir að 25.Kh2 væri erfiður og svartur ætti erfitt með að verjast máthótuninni. Hinsvegar á svartur flotta björgun…..25…Dg1! og taflið er jafnt. Yilmaz vafalítið verið með þetta á eldhúsborðinu enda notaði hann lítinn tíma.

Það voru fleiri sem voru ánægðir með byrjanaundirbúninginn. Slóveninn Matej Sebenik beitti undirbúningi beint upp úr námskeiði Anish Giri á Chessable!

Alexey Saranafór í mikla kóngssókn gegn Vahap Sanal. Sóknin virtist á kafla algjörlega óverjandi.

Bæði  26.Bf6 (sem hann lék) og 26.f5 virðist leiða til mátsóknar. Sarana tókst hinsvegar að klúðra sókninni.

Hér lék hann 29.e6 sem virkar freistani en 29…Da2 hleypti svörtum aftur inn í skákina. 29.Hd7 er meira og minna mát þar sem Hxh5 hótunin er of erfið.

Sanap hefði svo getað varist með því að éta allt saman með 33…Kxf6 34.Qc3+ Ke6 35.Rxg6+ Kxd7 og hvítur verður að taka þráskák. Þess í stað hélt skákin áfram 33..Ke6?? en réðist ekki fyrr en eftir afleikinn 38…f4?

Mikilvægur sigur hjá Sarana sem er hálfum vinningi á eftir efstu mönnum.

Fjölmargir nýttu sér jafnteflin á efstu borðum til að lyfta sér upp töfluna. Fjölmargir skákmenn með 4,5 vinning unnu með hvítu mönnunum. Einn af þeim var Velimir Ivic sem sýndi svakalegan byrjanaundirbúning gegn Matthias Bluebaum. Þeir tefldu einvígi á Heimsbikarmótinu um daginn og þar hafði Ivic einnig betur.

Helgi Áss Grétarsson er nú orðinn efstur Íslendinga. Helgi lagði Marin Bosiocic en sá skartar elóstigum yfir 2600 stiga múrnum. Í endatafli tókst Helga að veiða andstæðing sinn í fallegt mátnett og Króatinn varð að játa sig sigraðann. Þessi sigur kemur Helga í 5 vinninga og raunverulega mögulega á að ná einu af lykilsætunum 23 með góðum endaspretti.

Sigur Helga kom í lokin eftir langa baráttuskák

Hér leikur hvítur líklega best 50.Bg3 og uppskipti verða á b-peðum og jafntefli líklegustu úrslitin. 50.He7+?? var hinsvegar skelfilegur. 50…Kf3 51.He8 f5 52.gxf5

Helgi hefur líklega þrykkt 52…Bf6! á borðið með skrúfjárni! og hvað þá eftir 53.Hg8 Ha8!! og mátið er óumflýjanlegt!

Hannes Hlífar Stefánsson tapaði sinni skák í dag gegn Armenanum Robert Hovhannisyan. Hannes hefur 4,5 vinning eins og Héðinn Steingrímsson sem gerði jafntefli í sinni skák í dag og Bragi Þorfinnsson sem vann sína skák.

Fjölmargir Íslendingar hafa svo 4 vinninga, þeirra á meðal Vignir Vatnar, Jóhann og Davíð Kjartansson.

Agnar Tómas Möller áttu líklega ein óvæntustu úrslit umferðarinnar en hann lagði Hilmi Frey Heimisson að velli.

Góð úrslit hjá Agnari Tómasi

Helstu úrslit 8. umferðar

Skákskýringar er hægt að horfa á aftur hér að neðan:

Staðan eftir 8 umferðir

Pörun 9. umferðar

Heimasíða mótsins

Mótið á Chess-Results

Myndir úr 8. umferð

Myndir Þorsteins

Skákir mótsins PGN ( til og með 6. umferð)

- Auglýsing -