FIDE-meistarinn Hilmir Freyr Heimisson (2253) og alþjóðlegi meistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2399) eru efstir og jafnir með 3½ að loknum 4 umferðum á alþjóðlega unglingamótinu í Uppsölum.

Vignir vann í gær sænska alþjóðlega meistarann, og TG-inginn, Milton Pantzar (2413). Hilmir gerði jafntefli við alþjóðlega meistarann og skákmeistara Svíþjóðar, Jung Min Seo (2456).

Alexander Oliver Mai (2062) tapaði fyrir tékkneska FIDE-meistaranum Jakub Kusa (2303) í gær og hefur 1½ vinning.

Tvær umferðir fara fram í dag. Sú fyrri hefst kl. 9 og sú síðari kl. 15. Vignir og Hilmir mætast í fyrr skák dagsins. Alexander teflir við Norðmanninn og nafna sinn Alexander Oye-Stromberg (2131).

Alls taka 38 skákmenn þátt í mótinu. Vignir er fjórði í stigaröð keppenda, Hilmir er nr. 19 og Alex nr. 28.

- Auglýsing -