Þungt hugsi Hjörvar Steinn við taflið í Riga. — Morgunblaðið/Heimasíða FIDE

Stórmeistarinn, Hjörvar Steinn Grétarsson (2577) tapaði fyrir aserska stórmeistaranum og ungstirninu Aydin Suleymanli (2541) í fimmtu umferð FIDE Grand Prix-mótsins sem fram í gær.

Sjötta umferð fer fram í dag og hefst kl. 12. Hjörvar mætir þá alþjóðlega meistaranum Fy Antenaina Rakotomaharo (2480) frá Madagaskar.

Alireza Firouzja (2770), Frakklandi, Evgeniy Najer (2654), Rússlandi og Alexei Shirov (2659), Spáni eru efstir og jafnir með 4 vinninga í opnum flokki

108 keppendur taka þátt í opna flokknum og þar af eru 107 stórmeistarar! Hjörvar er nr. 96 í stigaröð keppenda sem segir margt um styrkleika mótins.

- Auglýsing -