Stórmeistarinn Hjörvar Steinn Grétarsson (2577) gerði sitt þriðja jafntefli í röð í 10. umferðinni á Grand Swiss mótinu í Riga. Andstæðingur hans var hinn „landlausi“ Vladislav Kovalev (2634) sem teflir undir fána FIDE en tefldi áður fyrir upprunaland sitt, Hvítarússland.

Hjörvar hafði hvítt og fékk fína stöðu. Uppskipti urðu á drottningum snemma en Hjörvar gerði sitt besta til að brjótast í gegn og fórnaði í endataflinu manni fyrir hættuleg samstæð frípeð. Kovalev náði að verajast og því slapp enn einn stórmeistarinn með skrekkinn eftir baráttu við Hjörvar.

Alireza Firouzja er aftur efstur og í kjörstöðu en hann lagði David Howell í skemmtilegri skák í umferð dagsins.

Kvennamegin er Lei Tingjie búin að tryggja sig inn á næsta áskorendamót kvenna.

Nánar má lesa um gang tíundu umferðar á Chess.com.

Í 11. og síðustu umferð mætir Hjörvar stórmeistaranum Alan Pichot (2628) frá Argentínu. Á toppnum fær Firouzja svart á Oparin sem deilir öðru sæti með Caruana. Caruana fær hvítt á Alexander Predke. Firouzja og Caruana verða að teljast líklegastir til að ná sætunum eftirsóttu á Áskorendamótinu.

108 keppendur taka þátt í opna flokknum og þar af eru 107 stórmeistarar! Hjörvar er nr. 96 í stigaröð keppenda sem segir margt um styrkleika mótins.

- Auglýsing -