Tómas Björnsson er efstur að loknum fyrsta degi á Skákþingi Norðlendinga sem fram fer á Kaffi Krók á Sauðárkróki. Tefldar voru 4 atskákir á föstudeginum og svo verða tefldar þrjár kappskákir um helgina.
Tómas hlaut 3,5 vinning í atskákunum fjórum, leyfi aðeins jafntefli við Gunnar Frey Rúnarsson. Þorleifur Karlsson er í öðru sæti með þrjá vinninga. Þeir munu einmitt mætast í 5. umferðinni.

Alls taka 10 skákmenn þátt á mótinu og er skákstjórn í öruggum höndum Ingibjargar Eddu Birgisdóttur.
- Auglýsing -















