Íslensku liðin töpuðu bæði sínum viðureignum í 1. umferð Evrópumóts landsliða í skák. Bæði lið fengu sterka andstæðinga, kvennaliðið tapaði 0-4 gegn sterkri hollenskri sveit en karlaliðið var grátlega nálægt jafntefli en varð að lúta í dúk 1,5-2,5 gegn sterkri spænskri sveit.

Kvennaliðsins beið sterk hollensk sveit

Zhaoqin Peng er stórmeistari og Tea Lanchava er alþjóðlegur meistari. Báðar eru þær mjög reyndar og með þeim í liðinu eru ungar og efnilegar stelpur. Eline Roebers er heimsmeistari U14 og Machteld er með ættarnafn sem flestir ættu að kannast við. Bróðir hennar, Jorden, vann einmitt sigur á Wijk Aan Zee mótinu fyrr á árinu.

Lenku beið erfitt verkefni á fyrsta borði. Kóngspeðið varð fyrir valinu og Lenka valdi að tefla traust. Svartur fékk örlítið frumkvæði og líklegast hefði hvítur átt að geta náð jafntefli í endataflinu. Þess í stað lenti Lenka í „djöflatrikki“ þar sem riddarinn var án reita úti á kanti.

Hallgerður var vel undirbúin gegn hinni efnilegu Roebers og tefldi trausta teoríu. Í miðtaflinu átti Roebers óvæntan og flottan leik, 17.Rc4! sem endaði á að vinna lið fyrir hvítan. Hallgerður barðist vel í vörninni en skiptamunurinn taldi í endann.

Jóhanna virtist þurfa að vinna úr erfiðri stöðu í miðtaflinu þar sem peð hvíts voru nokkuð veik. Erfitt að benda á hvaða mistök hvítur gerði, Van Foreest hin unga tefldi einfaldlega mjög góða skák og innbyrti góðan vinning.

Liss virtist fá vel teflanlega stöðu eftir byrjunina. Í miðtaflinu fjaraði undan svörtu stöðunni og loks féll skiptamunur og í kjölfarið staðan.

Kvennaliðið fær yfirsetu í annarri umferðinni og ættu því að koma ferskar til leiks í 3. umferðina!

Hjörvar virtist vera langleiðina kominn með að verjast frumkvæði hins vaska David Anton Guijarro en varð undan að láta í lokin.

Hannes fékk eitthvað verra eftir byrjunina og lenti í erfiðri vörn. Á endanum var ekki hægt að halda vopnum hvíts til lengdar á lofti.

Baráttujaxlinn Helgi Áss Grétarsson tefldi æsispennandi skák. Helga tefldi ónákvæmt í byrjuinni og lenti í beyglu. Helgi varð að fórna peði en Salgado Lopez virtist hafa öll vopn á hendi. Helgi náði að trikka skiptamun í tímahrakinu og náði jafntefli úr skák sem virtist á tíma gjörtöpuð.

Guðmundur Kjartansson var maður dagsins og vann skemmtilega skák á 4. borði. Skák Guðmundar var fyrsta skákin til að klára og því var lengi vel von á að úrslit næðust í viðureign dagsins við Spánverjana. Niðurstaðan að lokum tap 1,5-2,5.

Íslenska liðið í opnum flokki mætir liði Finna í 2. umferð.

Umferðir hefjast klukkan 14:00 að íslenskum tíma

Opinn flokkur á Chess-results

Kvennaflokkur á Chess-results

 

- Auglýsing -