Ritstjóri óskar skák- og skákáhugamönnum nær og fjær gleðilegra jóla! Sem fyrr geta skákmenn bæði teflt um jólin og einnig fylgst með sterkustu skákmönnum heims að tafli.
Íslandsmótið í atskák fer fram í umsjón TR dagana 27. og 28. desember. Vegna sóttvarna þarf að skrá sig á netinu og þátttaka takmarkast við 49 keppendur. Allir keppendur eru beðnir um að taka hraðpróf þann 27. desember.
Nánar um Íslandsmótið í atskák
Jólahraðskákmót TR fer svo fram 30. desember og hefst kl. 18:30.
Teflt verður mikið á Akureyri eins og venjulega um jól. Jólahraðskákmót SA fer fram 28. desember.
Heimsmeistararamótið í at- og hraðskák fer fram í Varsjá dagana 26.-30. desember. Nánast allir sterkstu skákmenn heims taka þátt.
Má þar nefna Magnús Carlsen, Alireza Firouzja, Daniil Dubov og Hikaru Nakamura.
Hægt verður að fylgjast með á ýmsum stöðum. Tenglar munu birtast á Skák.is fyrir mót.
















