Mynd frá Wijk aan Zee. Mynd: Lennart Ootes/Tata Steel.

Indverski stórmeistarinn Vidit Guirathi (2727) er efstur eftir fjórðu umferð Tata Steel-mótsins sem tefld var í gær. Indverjinn geðþekki hefur 3 vinninga. Fimm skákmenn eru jafnir í 2.-6. sæti með 2½ vinning og þar með talið heimsmeistarinn Magnús Carlsen (2865).

Pragg (2612) og Mamedyarov (2767) unnu í gær en öðrum skákum lauk með jafntefli. Carlsen gerði jafntefli við sigurvegarann frá í fyrra, Jorden Van Foreest (2702) í háspennuskák.

Frídagur er í dag. Fimmta umferð fer fram á morgun.

 

Nánari umfjöllun á Chess.com

- Auglýsing -