Kvikmyndir um viðburði í keppni greina hafa verið vinsælar undanfarið og má t.d. nefna baráttu tenniskappans Björns Borg við erkifjanda sinn, John McEnroe, og löng leikin myndskeið frá HM í knattspyrnu í Svíþjóð 1958 með Pele í aðalhlutverki. Einvígi Fischers og Spasskís í Laugardalshöllinni sumarið 1972 voru gerð skil í kvikmyndinni Pawn Sacrifice og ný rússnesk kvikmynd, um HM-einvígi Karpovs og Kortsnojs í Baguio á Filippseyjum árið 1978, Champion of the World , fylgir í kjölfar vinsælda Queen’s Gambit-þáttaraðarinnar.
Einvígið í Baguio var eitt best teflda heimsmeistaraeinvígi sögunnar. Kortsnoj, var „óvinur Sovétríkjanna“ eftir að hafa „stokkið“ yfir einn sumardag árið 1976. Hann stóð á hátindi getu sinnar og munaði minnstu að hann ynni þessa baráttu sem stóð í meira en þrjá mánuði og taldi 32 skákir. Teflt var upp á sex sigra og jafntefli ekki talin með. Karpov, sem var 20 árum yngri en Kortsnoj, tefldi hratt og örugglega en fór stundum flatt á því að reyna að notfæra sér tímahrak Kortsnojs.
En það var hið pólitíska leiksvið sem átti athygli umheimsins og furðulegar uppákomur sem tengdust dulsálfræðingnum Zoukhar. Sá hafði verið sendur til Baguio til að sitja á fjórða bekk og stara í hnakkadrambið á Kortsnoj, sem hafði sett upp spegilgleraugu til varnar frægum augngotum andstæðingsins. Hann bað um stól svipaðrar gerðar og Fischer fékk sendan frá Argentínu þegar hann tefldi við Spasskí. Svefnleysi, „skilaboð“ í jógúrtskál, hætt við handaband við upphaf skáka, Internasjónalinn spilaður fyrir mistök við setningarathöfn, Ananda Marga-liðar á flótta undan réttvísinni, glaðlegur geimfari, „töframaðurinn frá Riga“, Petra Leeuwerik, Raymond Keene, Marcos forseti Filippseyja, Campomanes og fleira fólk. Blaðamenn höfðu ærinn starfa. Nokkrar stöður í skákunum urðu frægar:
7. einvígisskák:
Kortsnoj – Karpov
Hér fór skákin í bið. Flestir áttu von á sigri Karpovs. Biðleikur Kortsnojs var 42. Dh8+ – og keppendur sömdu um jafntefli! Menn rak í rogastans en Murej, aðstoðarmaður Kortsnojs, hafði fundið jafnteflisleið fyrir Kortsnoj í afbrigði sem hefst með leikjunum: 42. … Ke7 43. Dg7+ Ke8 44. Dg8+ Kd7 45. Hxd3+ Kc8 46. Hxd8+ Bxd8 47. Kg1!
10. einvígisskák:
Karpov – Kortsnoj
– Sjá stöðumynd 2 –
Karpov lék nú riddara beint í „dauðann“:
11. Rg5!
Leynivopn Karpovs. Hugmyndin var 11. … Dxg5 12. Df3. Kortsnoj lenti í erfiðleikum en náði að bjarga jafntefli.
Þegar fram liðu stundir náði Karpov 4:1-forystu með þessari brellu:
17. einvígisskák:
Kortsnoj – Karpov
Staða Karpovs hékk á bláþræði lengst en nú hótaði hann máti á c1. Kortsnojs í miklu tímahraki og lék …
39. Ha1?? Rf3+!
og Kortsnoj gafst upp. Hann verður mát eftir t.d. 40. gxf3 Hg6+ og 41. … Rf2 mát.
Endataflstækni Kortsnojs sveik ekki nokkru síðar:
21. einvígisskák:
Kortsnoj – Karpov
Síðasti leikur hvíts var 58. Ke4-d5 . Nú gengur ekki 58. … Bxe5 vegna 59. Rd3! og vinnur. Framhaldið varð:
58. … Hd1+ 59. Rd3! Hxd3 60. Ke4
– og Karpov gafst upp.
Karpov komst í 5:2 með sigri í 27. skákinni en frábær taflmennska Kortsnojs gerði honum kleift að jafna metin. Eftir 31 skák var staðan 5:5 og allt undir. En Karpov vann 32. skákina og einvígið 6:5 með 21 jafntefli.
Skákþættir Morgunblaðsins birtast á Skák.is viku síðar en í blaðinu sjálfu. Þessi skákþáttur birtist 15. janúar 2022.















